Jora

Jórukleif

Jórukleif er upp frá Hestvík við Þingvallavatn. Hún er kennd við bóndadóttur í Flóa er Jórunn hét. Er hestur föður hennar beið lægri hlut í hestati einu þá trylltist hún og varð að tröllkonu. Settist hún að í helli einum í Hengli, sem þá var nefndur Jóruhellir. Hún beið ferðamanna er þar áttu leið um, í kleif einni, sem einnig var nefnd eftir henni, Jórukleif. Hún rændi öllu af ferðamönnunum og drap þá síðan. Gat enginn stoppað hana fyrr en góð ráð komu frá Noregskonungi.