Vígðalaug
Svo er sagt að eftir kristnitökuna á Þingvöllum árið 1000 hafi Sunnlendingar og Norðlendingar verið skírðir í Reykjalaug í Laugardal er þeir riðu af þingi. Upp frá því hefur nafnið Vígðalaug sennilega fest við hana.
Við Vígðulaug standa sex steinar sem greinilega hafa verið fluttir að henni, þessir steinar eru nefndir Líkasteinar. Svo er sagt að þegar Norðlendingar sóttu lík Jóns Arasonar Hólabiskups og sona hans í Skálholt árið 1551, hafi þeir hraðað sér við uppgröftinn og flýtt sér í burtu með líkin. Þeir áttu að hafa komið við á Laugarvatni og þvegið líkin þar og búið um þau til fulls, áður en haldið var áfram norður. Áttu þá líkbörur þeirra feðga að hafa verið lagðar á þessa steina og af því er nafnið Líkasteinar dregið. Vatnið í Vígðulaug er talið hafa lækningamátt við augnsjúkdómum.