Trúlofunarhríslan
Í Stóragili eru tvær reyniviðarhríslur. Sú yngri nefnist trúlofunarhríslan. Álög fylgja þessum hríslum. Ef grein er tekin af þeim þá fylgir annarri lán en hinni ógæfa. Þetta varð til þess að af hvorugri var tekið.