Skotugja

Skötugjá

Skötugjá nefnist gjá á Þingvöllum. Í gjánni var mikill silungur en sú regla gilti að enginn mætti veiða meira heldur en hann gæti notað sjálfur. Ekki mátti selja silunginn né geyma til næsta dags. Eitt sinn var bóndi einn á Þingvöllum sem trúði þessu ekki og vildi sanna að þetta væri rugl. Hann fór einn daginn og veiddi eins mikið og hann gat og var allt fullt af silungi heima hjá honum. Ætlaði hann síðan að selja fiskinn og fór hann daginn eftir að veiða en ekkert beit á hjá honum. Reyndi hann aftur daginn eftir þann dag, en ekkert vildi bíta á hjá honum lengi vel. Allt í einu beit þó á og þurfti hann að taka á öllu því sem hann átti til að ná þessum fiski. Er hann sá fiskinn birtast varð hann mjög hræddur því þetta var einskonar skata, stór og mikil, en það skrítnasta var að hún var með þrjá hala. Er þessi gjá síðan nefnd Skötugjá.