Laugarvatnshellir
Í Laugarvatnshelli, sem er við Vellina í 8 km fjarlægð frá Laugarvatni, er mikill draugagangur og þora menn ekki að vera þar lengi. Í gamla daga voru fáir sem þorðu að gæta fjár þar, en eitt sinn gerðu tveir kjarkmiklir menn það. Nennti annar þeirra ekki að ganga til byggða öll kvöld til svefns svo hann gisti bara í hellinum. Gekk allt vel fyrstu vikurnar og hann sótti alltaf vistir einu sinni í viku.
Eitt sinn kom hann niður að bænum og var honum mikið brugðið. Sagðist hann aldrei ætla að hellinum aftur. Fólkið reyndi að komast að því hvað hefði gerst. Í fyrstu varðist hann allra frétta. Eftir nokkra stund sagði hann þó hvað við hafði borið. Eitt kvöldið kallaði hann inn féð eins og vanalega en það vildi ekki koma inn. Kveikti hann þá eld því þá höfðu kindurnar alltaf komið inn, en jafnóðum og hann kveikti eldinn slokknaði hann aftur. Þá sagðist hann hafa gengið um hellinn blótandi og berjandi broddstafnum sínum út í loftið. Þá allt í einu kom féð allt inn eins og ekkert hefði gerst. Þá gekk hann til svefns, en er hann var nýsofnaður var gripið í lappirnar á honum og hann dreginn harkalega út að dyrum. Gekk þetta nokkrum sinnum svo hann hætti við að reyna sofna. Aldrei áður hafði hann lifað slíka heljarnótt.