Kálfstindar
Kálfstindar eru háir tindar upp af Laugarvatnsvöllum. Í þeim hæsta er klettabelti. Þjóðsaga segir að það sé gullbelti af skessu og til þess að ná því þurfi að ganga aftur á bak upp á tindinn og líta aldrei aftur.