Gullkista

Gullkista

Gullkista er kistulaga hnúkur inn á Miðdalsfjalli og blasir við frá Laugarvatni. Hnúkurinn á að vera kista, sem er full af gulli, og opnast aðeins ef tveir samhentir bræður búa í Miðdal og ganga þangað upp án þess að líta um öxl, eða hugsa ljótt. Sumir segja að þeir verði að ganga aftur á bak. Kistan hefur aðeins einu sinni opnast, og sýndist bræðrunum hún þá full af víðilaufi. Annar þeirra fyllti vettling sinn af laufinu, og var það orðið að gulli þegar þeir komu heim að Miðdal. 

Frá Gullkistu er mjög gott útsýni og þangað er ein fjölfarnasta gönguleið frá Miðdal.