Bergþór í Bláfelli
Bergstaðir er bær í Biskupstngum. Þar er ker eitt sem höggvið er í berg. Sagt er að risinn Bergþór er var frá Bláfelli hafi klappað kerið. Kerið var notað til geyma sýru (mysu), og varð að passa að vatn kæmist ekki í kerið og blandaðist við sýruna því þá fraus hún. Ekki má vanrækja að setja sýru í kerið því þá verða einhver óhöpp. Það hefur aðeins gerst þrisvar sinnum á síðustu árum. Í öll skiptin hefur bóndinn á Bergstöðum misst eitthvað af búfé sínu.