SlaerHann

"Þá slær hann"

Guðni Guðmundsson byggði húskofa á Búrfelli og dvaldi þar með systur sinni, Guðbjörgu, frá árinu 1942 til 1965. Hann keypti sér herjeppa árið 1947 og var ekki búinn að taka bílpróf. Hann var nú að dytta að bílnum, en rafgeymirinn var lélegur og þurfti að gangsetja bílinn með sveif.
Dag nokkurn kom Páll bóndi að Guðna þar sem hann var að snúa sveifinni á fullu en bíllinn fór ekki í gang. Sá Páll þá að svissinn var ekki á og sagði að ekki væri undarlegt að bíllinn færi ekki í gang því svissinn væri ekki á. En þá sagði Guðni: "Nei þá slær hann!"