Sængurkonuklettur
Á bænum Laugum bjó Bjarni bóndi og kona hans ásamt heimilisfólki. Húsfreyjan var komin að því að verða léttari. Hún lét það þó ekki aftra sér frá því að fara út í haga að leita kúnna. Þegar hún kemur í Gilhaga mætir hún nauti. Hún nær að flýja undan því uppá klett. Þegar hún kemur upp klettinn elur hún dóttur. Upp frá því kallast þessi klettur Sængurkonuklettur.Um þetta var kveðin svohljóðandi vísa:
"Kúrðu um nótt á klettinum
kona og dóttir Bjarna."