Ketilbjorn

Ketilbjörn á Mosfelli

Eitt sinn bjó á Mosfelli Ketilbjörn nokkur Ketilsson. Sagt er að hann hafi numið Grímsnes frá Höskuldslæk, allan Laugardal og Biskupstungur alla leið upp til Stekkár. Ketilbjörn átti fullt af silfri og bauðst til þess að gera handa sonum sínum þverslá í bæinn úr silfri en þeir vildu það ekki. Ketilbjörn vildi þá fela fjársjóðinn og lét tvo uxa draga hann upp á fjallið. Lét hann síðan ambátt eina og þræl grafa og fela fjársjóðinn. En til að tryggja að enginn vissi hvar fjársjóðurinn væri þá drap hann þau bæði.