Hinrik á Iðu
Iða er bær í Biskupstungum. Þar átti heima á 18. öld. Hinrik Hinriksson. Sagan segir að hann hafi útbúið sér flugham úr fuglsvængjum. Sagt er að hann hafi getað hafið sig til flugs og farið nokkurn spöl á flugi, til dæmis yfir Hvítá sem er rétt hjá Iðu. Var flughamurinn tekinn af honum og eyðilagður því þetta þótti fífldjarft og óguðlegt.