GullfossVad

Vaðið yfir Gullfoss

Seint á 17. öld bjó ungur maður að nafni Þórður Guðbrandsson í Brattholti í Biskupstungum, rétt vestan Hvítár. Eitt sinn sem oftar var hann á gangi skammt ofan við fossinn og sá til ferða ungrar stúlku, sem hann kannaðist við, Guðrúnar Guðbrandsdóttur, hinum megin árinnar. Guðrún þessi bjó í Hamarsholti austan megin við Hvítá. Hamarsholt er nú fyrir löngu farið í eyði. Þórður kallaði til stúlkunnar yfir ána og bað hennar. Hún sagðist vilja giftast honum með því skilyrði að hann kæmi sér strax yfir ána til hennar. Þórður lét sig þá vaða út í straumþunga ána og komst yfir heilu og höldnu. Guðrún og Þórður giftust síðan og bjuggu á Fjalli á Skeiðum.