Þrasaborgir
Efst upp á Lyngdalsheiði eru nokkrir hólar, sem heita Þrasaborgir. Er sagt að þeir sem áttu land að heiðinni hefðu barist á flöt, vestan við hólana, sem heitir Stríðsflötur.