Með þrjá til reiðar
Sagan gerist á réttadag í kringum 1950. Maður nokkur er Guðmundur hét sló á þeim árum valllendisflatir í Búrfellsdal. Þennan umræddan réttadag var veður gott, og Guðmundur ætlaði í heyskap þangað og fór því fyrr heim en aðrir. Á leið sinni vestur yfir Hæðarenda sá hann mann á Selflötum með þrjá hesta til reiðar, og sá stefndi í sömu átt og Guðmundur, en var nokkuð á undan. Guðmundur reyndi að ná manninum, en alltaf þegar Guðmundur reið upp á hól eða hæð var maðurinn að hverfa fyrir næsta leiti. Þegar þeir fóru að nálgast Búrfellsdal var maðurinn að hverfa ofan í hálsinn í Búrfellsdal. Þá hleypti Guðmundur hestinum á skeið, svo ómögulegt var annað en hann hefði náð manninum. Þegar hann kom í dalinn sá hann aðeins vinnumann sinn sem hafði verið að vinna við heyfeng þar, og hann hafði ekki séð neinn nema Guðmund koma yfir hálsinn. Taldi Guðmundur þennan mann vera framliðinn bónda, sem hafði verið að ríða heim úr réttum.