Draugasögur

Mynd tekin af http://www.krokur.is/~hallfrid/thjods/draugur2.gif
Menn hafa lengi trúað á drauga og ýmsar sögur eru til um þá. Klæðnaður drauga var misjafn en sagt er að karldraugarnir séu oftast í mórauðri peysu með lambhúshettu og sumir gangi með broddstaf. Kvendraugarnir eru með mórauð skaut með afturbognum króki og oft á rauðum sokkum og sjúga fingurna. Til að verjast ásókn drauga er best að signa sig ofan á höfuðið því að draugar sækjast helst eftir því að komast fyrst yfir höfuðið á mönnum, líklega til að rugla þá. Ein af þekktari draugasögum hérlendis er sagan Móðir mín í kví, kví. Hún hljóðar svo: Móðir nokkur kastaði barni sínu nýfæddu út í flagpælu nokkra skammt frá kvíum. Sumarið eftir, nokkru fyrir réttir, átti að halda vikivaka um nótt að kirkju nokkurri og ætlaði kvensnift þessi þangað, en fékkst mjög um það að hún hefði ekki næg föt. Morguninn næsta fyrir dansfundinn var hún að mjólka ær í kvíum. Kom útburðurinn þá á kvíavegginn og kvað:
Móðir mín í kví, kví,
kvíddu ekki því, því.
Ég skal lána þér duluna mína að dansa í.
Sló hann síðan tuskunni í andlit henni. Missti hún þá sjónina og varð blind síðan