Draugaskard

Draugaskarð

Vegurinn á milli Ásgarðs og Búrfellskirkju liggur fram hjá þverhníptu skarði. Þegar fólk reið þar framhjá fannst því alltaf að hestarnir hnytu á sama stað hjá skarðinu. Fólkið taldi það vera draug sem olli þessu og nefndi skarðið Draugaskarð.