Storagil

Stóragil

Stóragil-eystra er gilskorningur milli Laugarvatnsfjalls og Snorrastaðafjalls, rétt ofan við tjaldsvæðið. Inni í gilinu eru hellar og klettar sem skemmtilegir eru fyrir klifurgarpa. Þar er og trúlofunarhríslan.

Stóragil-vestra er grafið af Litluá, sem rennur eftir því endilöngu og síðan milli bæjanna Laugarvatns og Eyvindartungu út í Laugarvatn. Neðantil í gilinu eru tveir fagrir fossar í ánni og rétt neðan við neðri fossinn steypist lækur niður í gljúfrið að vestanverðu í allháum fossi.