Nikulasargja

Nikulásargjá


Mynd tekin af http://www.myndabanki.is/

Nikulásargjá er hraunsprunga á Þingvöllum, eystri grein Flosagjár. Vatnið í gjánni er sums staðar mjög djúpt en hreint og litfagurt. Upp úr vatninu rísa háir og þverhníptir hamrar. Þar sem gjáin er mjóst allnorðarlega er hún aðeins 3,30 m milli barma og er þar nefnt Flosahlaup.

Nikulásargjá er kennd við Nikulás Magnússon sýslumann. Hann sturlaðist á Alþingi árið 1742 og fannst dauður í gjánni.

Um leið og brú var gerð yfir Nikulásargjá, 1907, hófst sá siður að kasta peningum af brúnni í gjána og er hún nú þar kölluð Peningagjá. Einstöku menn hafa kafað eftir peningunum en hafa þó fljótlega gefist upp því vatnið er svo kalt, ekki nema 3°C.