Laxárgljúfur

Mynd tekin af http://vefprofun.lv.is/
Í Stóru-Laxá er gljúfur mikið og er það nefnt Laxárgljúfur, og ber það af öðrum gljúfrum við ána. Gljúfrið er um 10 km langt, og allt að 200 m djúpt og er það víðast ógengt. Boðið er upp á hestaferðir að Laxárgljúfri frá Syðra-Langholti og er þá farið upp hjá Kaldbak, sem er síðasti byggði bærinn á leiðinni. Þaðan er farið til hægri að tveimur hálsum, en handan við þá er komið að ánni. Því næst er komið að bæ sem hét Hrunakrókur, en hann hefur verið í eyði í áratugi, og þaðan er stutt eftir að gljúfrinu sjálfu.
Leiðin býður uppá mikla náttúrufegurð þar sem t.d. skiptast á mikil gljúfur og sandeyrar í ánni.