Launrétt

Launrétt í Laugarási

Launrétt er eyri á bökkum Hvítár. Upp af henni er hæð sem heitir Launréttarholt. Það endar í háum bergvegg: Launréttarklettum og snúa þeir að ánni. Við hliðina á bergveggnum eru stakir klettar og saman mynda þeir afmarkað svæði. Sé gengið upp á holtið er útsýni gott yfir í næstu hreppa. Neðan við Launréttakletta er volgur lækur sem kemur frá hverasvæðinu ó Laugarási. Hann rennur um Launrétt og sameinast ánni fyrir neðan hana. Fyrir þrem áratugum var þarna ákjósanlegur baðstaður hefði mengun af frárennsli þorpsbúa ekki spillt fyrir.

Tvær kenningar eru til um nafn Launréttar. Önnur er að þangað mátti reka fé án þess að það yrði þess vart að það lokaðist inni. Hin styðst við munnmæli, sem segja að á þessum stað hafi flökkulýður safnað saman stolnu fé og slátrað sér til matar.

Nú er þar læknasetur sem þjónar nærliggjandi hreppum og nýbúið er að reisa þar nýja heilsugæslustöð.