Laugarvatnshellir

Laugarvatnshellir eru í rauninni tveir hellar, 5-6 km vestan við Laugarvatn. Hellarnir eru úr mjúku sandsteins-móbergi. Í gilinu austan við hellinn er eitthvert fegursta bólstraberg er getur að líta. Gilbotninn allur er gerður af bólstrum, svo og veggirnir upp af. Í hellinum var búið tvisvar á þessari öld, síðast um 1920, og fæddist þar eitt barn. Sagt er að reimt sé í hellunum.