Kerið
Kerið er ein af 12 eldstöðvum í Grímsnesinu. Talið er að Kerið sé um 5000 ára gamall sprengigígur. Það er sporöskjulaga, um 270 metra langt og breiðast 170 metrar. Dýpt gígsins er 55 metrar en í botni hans er tjörn sem er breytileg að dýpt, 7-14 metrar.