HverirGeysissvaedid

Einstakir hverir á Geysissvæðinu

Geysir
Geysir í Haukadal, sem áður var ætíð nefndur Stóri-Geysir en einn frægasti goshver á jörðinni. Geysir er frægastur fyrir gosin sem talið er að hafi náð allt að 80 m hæð. Geysir er hins vegar hvorki stærstur né mestur af goshverum jarðarinnar en frægð hans er líklega til komin vegna þess að hann varð fyrr þekktur í Evrópu en aðrir goshverir.

Blesi
Í Blesa eru tvær allvíðar skálar og bil, blesa, á milli. Syðri hverinn er mjög djúpur og vatnið í honum er tært og sjóðandi heitt. Úr honum rennur vatnið yfir haftið í norðurhverinn ern vatnið í honum er himinblátt.

Fata
Skammt sunnan og neðan við Blesa er hverinn Fata, sem ekki er ósvipaður fötu í laginu. Vatnsyfirborð Fötu er mishátt og stundum gýs hún af sjálfsdáðum en með sápugjöf gýs Fata oftast fallega. Fata er fremur vatnslítill hver en vel heit.

Konungshver
Konungshver er skammt ofan og norðvestan við Blesa. Hann er nyrsti hverinn á Geysissvæðinu ásamt Geysi sjálfum. Aldrei hefur gosið í konugshver enda pípan full af stórgrýti, sem vel sést þegar horft er í hverinn, en samt sem áður ólgar stundum nokkuð í honum.

Litli-Geysir
Litli-Geysir er rétt við göngustíginn nokkru sunnan við Strokk. Áður gaus hann stöku sinnum 6-8 m háum gosum en hefur nú legið í dvala í nokkurn tíma.

Seyðir
Seyðir nefnist hver rétt við Litla- Geysi. Hann er nú að mesta kólnaður en talið er að hann hafi áður fyrr verið einn af aðalhverum svæðisins.

Óþerrishola
Óþerrishola er nokkru vestan við Litla-Geysi. Hverinn er einkum þekktur fyrir að spá fyrir um veður og þá einum óþurrk. Þegar loftþrýstingur lækkar fer hverinn að skvetta og gefur þannig hugmynd um veðirð í kjölfar loftþrýstingslækkunarinnar. Til að fá hverinn til að gjósa þarf að veita frá honum köldum lækjum sem venjulega falla í hann og sápuskammturinn þarf að vera í stærra lagi.

Sísjóðandi
Sísjóðandi er einna vestastur Þykkvuhvera, en í honum sýður mikið á köflum. Ekki nær þó hverinn að gjósa enda þrengir klöpp að honum. Hverinn var notaður til þvotta fram yfir miðja þessa öld.