Hjalparfoss

Hjálparfoss í Þjórsárdal

Fossá kvíslast um hraunið á milli gervigíganna þar til hún fellur fram af hraunbrúninni í stórkostlegum tvískiptum fossi sem heitir Hjálparfoss. Hann er kenndur við grasfitina Hjálp sem er litlu neðar, austan við ána. Greinilegt er, að þegar hraunið rann hefur það átt í mikilli baráttu við vanskælingu og hefur þar myndast mjög fallegt stuðlaberg sem gerir fossinn afar sérstakan og fallegan. Djúpir hylir og hraundrangar í tærri ánni lífga upp á umhverfið. Gróna svæðið í hvamminum við fossinn er kallað Hjálp. Hjálp er eins og gróðurvin í stórri eyðimörk því umhverfið er aðeins vikur og sandöldur á stóru svæði. Því miður hefur gróður í hvamminum Hjálp, látið mikið á sjá á síðustu árum vegna vaxandi ágangs ferðamanna. Viðkvæmur fjallagróður þolir illa ágang manna dag eftir dag, ekki síst í þurrkatíð.