Haifoss

Háifoss í Þjórsárdal

Í Þjórsárdal í Gnúpverjahreppi er þriðji hæsti foss landsins, Háifoss, en hann er um 122 metrar á hæð. Þó það sé oftast talað um Háafoss í Þjórsárdal heitir þessi innsti hluti dalsins Fossárdalur.

Í Fossárdal er miklu meiri gróður en í Þjórsárdal. Umhverfið þar er mjög fagurt sérstaklega í góðu veðri og er gaman fyrir ferðamenn að ganga frá Stöng og inn að Háafossi. Leiðin er mjög greiðfær og tekur rúma tvo tíma að ganga hana. Einnig er hægt að aka á jeppum nokkuð inn eftir Þjórsárdal og ef þurrt er í verði má aka sæmilegan veg skammt frá uppistöðulóninu ofan Búrfells og langleiðina að Háafossi. Ef þessi leið er valin er styttra að ganga. Það er alveg þess virði að fara og sjá þennan foss því að hann ásamt og hrikalegu gljúfrinu er ógleymanleg sjón.