Gjáin í Þjórsárdal
Gjárfoss í Gjánni í Þjórsárdal er ásamt umhverfi sínu einstakt náttúrufyrirbrigði. Áin sem rennur um Gjána heitir Rauðá og sameinast hún Fossá skammt frá vesturhorni Skeljafells. Rétt fyrir neðan fossinn er djúpur hylur. Ofan í Gjánni er undirlendi með grasbrekkum og uppsprettulindum. Þar eru einnig hellar og höfðu fjallmenn og ferðamenn þar oft náttstað síðustu nóttina í eftirsafni og eftirleit. Fjallmenn hættu að hafa náttstað þar eftir að kofinn í Hólaskógi var byggður árið 1936. Margir lækir og uppsprettur sameinast í Rauðá í Gjánni og setja svip sinn á stórkostlegt umhverfið. Margir furða sig á því hvað náttúran er fjölbreytt og heillandi á svo litlu svæði.