Geysissvæðið í Haukadal

Mynd tekin af http://hot-springs.org/images/P0000473.JPG
Í 105-120 metra hæð yfir sjávarmáli, við efri mörk Suðurlandsundirlendis, er Geysissvæðið í Haukadal í Biskupstungum. Jarðhitinn í Haukadal, sem er utan gosbeltis eða í jaðri þess, gæti stafað af háhitasvæð,i sem er að reka út úr gosbeltinu og breytast smátt og smátt yfir í lághitasvæði.
Flatarmál háhitasvæðisins á yfirborði er talið um þrír ferkílómetrar en virkur jarðhiti er aðeins á hluta þess svæðis. Flestir hveranna eru á 100 m breiðri og 500 m langri ræmu sem liggur í suð-suðvestur. Hiti vatnsins á um 20 m dýpi í strokk Geysis er um 125°C og hefur stigið upp frá 1-2 km dýpi. Vatnsmagnið sem kemur upp á öllu svæðinu er um 14l/s, og þar af um 1,5 l/s í Geysi sjálfum. Í hinum illræmdu Suðurlandsskjálftum hafa djúpstæðar sprungur hreyfst allt norður til Haukadals eftir jarðskjálftasvæðinu og ekki síst haft áhrif á goshverina, sem hafa þá gosið hver í kapp við annan. Þrátt fyrir þetta hafa virkar jarðskjálftasprungur ekki verið raktar að Geysissvæðinu og ókunnugt er um skjálftavirkni frá svæðinu sjálfu. Nú telja jarðfræðingar þess ekki langt að bíða að næsti Suðurlandsskjálfti ríði yfir og muni hann að öllum líkindum lífga Geysissvæðið verulega á ný.