Geysir

Geysir

Geysissvæðið í Haukadal er á sprungusvæði undir Laugarfelli. Hverirnir eru á um 100 m breiðri og um 500 m langri ræmu með stefnuna SSV.

Hverahrúður hefur myndast á svæðinu við útfellingu kísils úr hveravatninu. Mjög stór hverahrúðurshella þekur hverasvæðið og nær hún yfir um 200 þúsund fermetra landsvæði. Þegar hellan er rannsökuð kemur í ljós að undir henni er um 20 cm þykkur moldarjarðvegur sem liggur ofan á eldra hverahrúðri. Af þessu má sjá að jarðhitinn hefur legið niðri um tíma. Síðan hefur trúlega komið jarðskjálfti, því þarna hefur opnast sprunga og mikið vatn streymt upp. Á sprungunni hafa myndast stórir goshverir og vatnið úr þeim síðan myndað nýtt hrúðurlag yfir jarðveginn. Talið er að þetta hafi gerst í lok 13. aldar. 
 

Strokkur Geysir sjálfur gýs ekki lengur, en af helstu goshverum núna ber fyrstan að telja Strokk sem gýs með nokkurra mínútna millibili allt að 30-35m háu gosi. Aðrir hverir eru t.d. Sóði, Smiður, Fata, Blesi, Sísjóðandi, Seyðir, Vigdísarhver, Litli-Geysir og Litli-Strokkur. Nú standa yfir deilur um hvort rétt sé að framkalla gos í Geysi.

Heimasíða Geysis