Flosagjá
Flosagjá er hraunsprunga á Þingvöllum, milli Brennugjár og Háugjár. Hún er um 800 m löng og allt að 25 m djúp. Botninn er langt fyrir neðan yfirborð grunnvatnsins og Þingvallavatns svo að gjáin er að mestu leyti fyllt vatni. Þó vatnið sé mjög tært og hreint sést ekki til botns. Hitinn er svo lítill, um 4°C, að ekkert jurta- eða smáverulíf þrífst í vatninu.
Syðsti hluti Flosagjár kvíslast og verða þar til tvær samhliða gjár.
Allt fram á síðustu öld töldust báðar þessar gjár til Flosagjár, en nú er einungis hin vestari látin halda því nafni. Hin eystri hefur verið nefnd Nikulásargjá.
Flosagjá er kennd við Flosa Þórðarson, síðar nefndur Brennu-Flosi. Hann var bóndi og goðorsmaður sem bjó að Svínafelli í Öræfum. Flosi tjaldaði við gjána árið 1012 er hann varði brennumálin á Alþingi.