Reykholt
Saga staðarins hefst þegar þar er reistur barnaskóli 1928. Var það einvörðungu heimavistarskóli og var hann reistur í landi Stóra-Fljóts.
Jarðhiti fannst þar á fyrri hluta aldarinnar og myndaðist fljótlega byggð í kringum jarðhitasvæðið.
Um miðja öldina var byggt félagsheimili fyrir Biskupstungnahrepp og kallast það Aratunga, nefnt eftir Ara fróða Þorgilsyni.
Á þessum tímapunkti hafði myndast traust byggð í Reykholti og treystist hún enn frekar þegar reist var verksmiðja í námunda við þorpið um árið 1990.