Ylræktarsvæði

Ylræktarsvæði

Í uppsveitum Árnessýslu eru margir þéttbýliskjarnar sem hafa byggst upp vegna hita í jörðu. Ylrækt hefur verið og er enn stór þáttur í atvinnulífi þessara litlu þorpa og flestir íbúanna hafa lífsviðurværi sitt af alls kyns garðyrkju. Jarðhitinn gerir kleift að rækta grænmeti og fleira yfir hávetur. Einnig er hann nýttur í fiskvinnslu og brauðbakstur. Jarðhitinn kemur yfirleitt frá hverum á stöðunum eða í nágrenni þeirra og er nýttur til upphitunar gróðurhúsa jafnt sem íbúðarhúsa.

Helstu hverasvæði í uppsveitum Árnessýslu eru:
Flúðir í Hrunamannahreppi
Laugarás í Biskupstungum
Laugarvatn í Laugardal
Reykholt í Biskupstungum