Sultartangavirkjun
Sultartangavirkjun við framleiðir 120 MW og hún notar allt að 316 m³/s af vatni með fallhæðina 43 m. Orkan í landinu jókst um 880 GWstundir á ári (gíga er forskeyti sem er 1000 milljónir) með notkun þessarar virkjunar.
6,1 km löng stífla, sú lengsta á Íslandi, var gerð til að geta veitt vatninu í virkjunina. Lónið þarf að rúma mikið magn vatns því virkjunin krefst mikils vatns sökum lítillar fallhæðar en lónið þekur 20 km² og miðlunarrými þess er 109 Gl (1000 milljónir lítra).
Stuttur aðrennslisskurður var gerður rétt fyrir ofan botnrásarskurð, en hann liggur að aðrennslisgöngum sem er 3,4 km löng, 10 m breið og 15 m há. Þaðan fara þau að jöfnunarþró. Úr jöfnunarþrónni fer vatnið í stöðvarinntak og síðan rennur það í stálpípum í stöðvarhús, sem kemur til með að hýsa 2 aflvélar, 60 MW hvor að stærð. Frárennslisskurður verður 7,2 km langur með meðaldýpt um 25 m. Nauðsynlegt er að hafa skurðinn svo langan og djúpan svo hægt sé að koma vatninu aftur út í ána. Hér er um að ræða mesta jarðvegsflutning fyrr og síðar á Íslandi.