Sogsstöðvar
Sogsstöðvarnar eru þrjár Ljósafoss, Írafoss og Steingrímsstöð Þær framleiða samtals 90 MW eða 465 GWst á ári. Samtenging þessara stöðva nýtir til fullnustu heildarfallhæðina úr Þingvallavatni yfir í Úlfljótsvatn.
Það var í lok þriðja áratugarins sem fullmótaðar áætlanir lágu fyrir um hönnun þessara stöðva. Síðan var það árið 1934 að fyrsti áfangi, Ljósafossstöð, var boðinn út og árið 1935 var hafist handa.
Vinsælt er af ferðamönnum að sækja þessar stöðvar heim, enda vel tekið á móti fólki og margt skemmtilegt og framandi að sjá varðandi virkjun Sogsins.