Búrfellsvirkjun
Vatnið er virkjað úr Þjórsá og veitt fram í Bjarnalækjarbotna, kvos milli Skeljafells, Sámsstaðarmúla og Skálarfells sem er norðurendi Búrfells. Stíflugarður liggur úr Skálarfelli að veitumannvirkjum við Þjórsá um tveggja kílómetra leið og verður við það uppistöðulón í kvosinni. Bjarnarlón er um 1 ferkílómetri að stærð. Þar eru mikil miðlunarmannvirki. Vatnið er leitt úr lóninu um göng sem eru um 1400 m á lengd, niður í gegnum Sámsstaðarmúla, um 115m fall, í gegnum stöðvarhúsið sem er að hluta sprengt niður í múlann.
Virkjunin er 210 MW og var byggð á árunum 1966 - 1972. Í henni eru 6 hverflar sem eru 35 MW hver. Hinir 3 fyrstu voru teknir í notkun árið 1969 en hinir 3 seinni árið 1972. Til gamans má geta þess að um 230 rúmmetrar af vatni renna í gegnum virkjunina á sekúndu.