Héraðsskólinn

Bókasafn

Í gamla Héraðsskólahúsinu á Laugarvatni er rekið bókasafn á vegum Menntaskólans að Laugarvatni og Laugardalshrepps.

Þetta bókasafn samanstendur af safni Héraðsskólans og Menntaskólans annars vegar og hreppsbókasafni Laugardalshrepps hins vegar. Á safninu er mikill fjöldi merkilegra bóka og eru þar margar bækur frá 18.öld. Þar eru einnig verðmætar fræðibækur á erlendum málum frá síðustu öld.

Safnið er frægt, ekki síst fyrir þær sakir að margir fremstu listamenn þjóðarinnar dvöldu þar við leik og störf. Ber þar, að öðrum ólöstuðum, helstan að nefna Halldór Kiljan Laxness, en margar af bókum hans litu einmitt fyrst dagsins ljós á safninu.
Fleiri íslenskir rithöfundar fyrr á öldinni hafa dvalið langdvölum á safninu við ritstörf. Þessu til sönnunar má benda á, að á sínum tíma bárust Héraðsskólanum fjöldi rausnarlegra listaverkagjafa í þakklætisskyni frá listamönnum sem eyddu tíma sínum á sumarhóteli Héraðsskólans og unnu samhliða því á bókasafninu. Þessi listaverk eru nú metin á tugi milljóna króna.
Bókasafnið hefur átt við húsnæðisvanda að stríða en það horfir til bóta þar sem uppbygging þess er vel á veg komin í  Héraðsskólahúsinu, sem fyrr segir.
Uppbyggingu safnsins er ekki að fullu lokið þegar þetta er skrifað. Opnunartími safnsins er breytilegur yfir sumartímann, þar sem framkvæmdir eru mestar á þeim árstíma. Í framtíðinni mun safnið verða opið árið um kring og er aðgangur ókeypis en útlán bóka eru takmörkuð við skólavist í Menntaskólanum að Laugarvatni og/eða búsetu í Laugardalshreppi.