Flúðir
Félagsheimilið
Í félagsheimili staðarins eru fjórir salir sem taka á bilinu 50 - 350 manns. Grunnskólinn heldur diskótek þarna og svo er afbragðs aðstaða fyrir fundi og
fyrirlestra. Þarna er líka tónlistarherbergi fyrir píanókennslu og kóræfingar. Bókasafn staðarins er svo starfrækt á efri hæðinni.
Öðru hvoru eru eru bíósýningar í stóra salnum. Þetta er eina bíóið á Suðurlandi.
Stóri salurinn er líka notaður undir leiksýningar sem leikfélag UMFH (Ungmennafélag Hrunamanna) stendur fyrir og jafnframt fyrir stærri samkomur. Allt árið er svo rekið hótel með veitingastað í húsinu. Þarna er líka sjoppa og myndbandaleiga.
Sumarhúsabyggð
Á undanförnum árum hafa verið skipulögð mörg ný sumarhúslönd. Helst má þar nefna: Ásabyggð með 45 hús, Svanabyggð, Heiðabyggð og fleiri svæði. Sumarhúsin eru nú á annað hundrað, og liggja þau vel við samgöngum. Í langflestum tilvikum eru húsin tengd heitu og köldu vatni. Flestir bústaðirnir eru í einkaeign, en félög eins og Kennarasamband Íslands og Verslunarmannafélag Reykjarvíkur, hafa komið sér vel fyrir þarna.
Flugvöllur
Flúðaflugvöllur er rétt vestan við byggðina á Flúðum. Hann er ein flugbraut, 730 m. löng. Brautarstefnan er 04 - 22 . Yfirborð flugbrautarinnar er möl og hæð yfir sjó er 270 fet.
Á flugvellinum er flugskýli sem rúmar fjórar, eins hreyfils vélar og þar er einnig hús sem er notað sem aðstaða fyrir þá sem leið eiga um flugvöllinn.
Þar er flugradíó með tíðni 118,1.
Sími á flugvellinum er 486 6589 .