Heilsugaesla

Heilsugæsla í 100 ár

Nú eru rúmlega 100 ár síðan uppsveitir Árnesýslu fengu sérstakan lækni, en læknishéraðið var formlega stofnað 13. október 1899 og sat þá læknirinn í Grímsnesi.
Fyrsti héraðslæknirinn var Skúli Árnason og var hann settur í embætti þann 6. apríl árið 1900.
Hann þjónaði héraðinu frá Skálholti þar sem hann bjó.

Fyrstu læknisbústaðirnir
Árið 1922 keyptu uppsveitahrepparnir jörðina Laugarás í Biskupstungum og þar var fyrsti læknisbústaðurinn byggður, en það er fyrsta húsið á Suðurlandi sem hitað var upp með jarðhita.
Þetta hús reyndist illa og því var byggður nýr læknisbústaður í Laugarási árið 1938 og stendur það hús enn í dag.

Þriðji áfanginn í framkvæmdasögunni var svo bygging læknisbústaðar og lækningaálmu niður undir Hvítá á árununm 1963-1965.

Læknamiðstöð stofnuð
Læknirinn starfaði einn í héraðinu til ársins 1968, en þá hafði fólki í héraðinu fjölgað talsvert og ferðamannastraumur aukist til muna. Þá voru fengnir aðstoðarlæknar og hjúkrunarkonur, en ekkert húsnæði var til fyrir þetta fólk. Árið 1971 var ákveðið að stofnuð skyldi læknamiðstöð í Laugarási, ein sú fyrsta hér á landi. Árið eftir,1972, var síðan byggt við læknabústaðinn og tveir nýir læknar komu til starfa.

Ný lög um heilsugæslu
Árið 1973 voru sett lög, þar sem gerðar voru meiri kröfur um heilbrigðisþjónustu, og árið 1978 fékk heilsugæslustöðin í Laugarási lögformlega stöðu á grundvelli laganna frá 1973.

Fjölgun starfólks
Árið 1978 var ráðinn læknaritari og árið 1981 var ráðinn meinatæknir, ýmis lækninga-og rannsóknatæki voru keypt og rannsóknastofa var sett upp. Tæki þessi voru að mestu fjármögnuð af ýmsum félögum og samtökum í héraðinu, sem sýndu mikinn stuðning. Hjúkrunarfræðingar voru ráðnir og ljósmóðir tók upp mæðraskoðun. Starfsfólk fór þá að kvarta undan þrengslum og þann 6. september árið 1982 ályktaði stjórn heilsugæslustöðvarinnar að byggð skyldi ný heilsugæslustöð.

Ný heilsugæslustöð
Bréf voru send ráðuneyti og Alþingi og beðið var um fjárveitingu fyrir nýrri heilsugæslustöð.
Tíu ár liðu áður en fjárveiting fékkst.
Það var árið 1995, þann 8. febrúar, að ráðherrar og oddvitar sveitarfélaganna gerðu samning um fjármögnun og framkvæmdir vegna nýrrar heilsugæslustöðvar við hátíðlega athöfn á Skálholti, og hófust framkvæmdir þá um vorið. Heilsugæslustöðin var svo opnuð þann 21. júní 1997.
Félög og samtök í héraðinu hafa alltaf sýnt mikinn áhuga á að bæta heilbrigðisþjónustu með því að gefa lækningatæki og ýmis áhöld.

Fjölsóttir ferðamannastaðir eru í þessum sveitum, svo sem Gullfoss, Geysir og Skálholt. Augljóst er að það er mikilvægt að hafa góða heilsugæslu á svæðinu.
Íbúar í umdæminu eru um 2.500 og eru þeir mjög ánægðir með þá heilbrigðisþjónustu sem þeir fá, enda eru hús og tæki mjög góð. Heilsugæslan er vel búin öllum tækjum: þar eru ný röntgentæki og fullkominn tölvubúnaður. Þar starfar nú hjúkrunarforstjóri, 2 læknar, hjúkrunarfræðingur, meinatæknir og annað starfsfólk.
Heilsugæslan í Laugarási hefur útibú á Laugarvatni og það er læknamóttaka á Flúðum.

Skúli Árnason frá apríl 1900 - des 1921 21 ár
Óskar Einarson frá febrúar 1922 - maí 1925 3 ár
Sigmundur Sigurðarson frá júní 1925 - maí 1932 7 ár
Ólafur Einarsson frá júní 1932 - apríl 1947 15 ár
Knútur Kristinsson frá júlí 1947 - júní 1955 8 ár
Kjartan Arnarsson frá sept 1955 - nóv 1955 0 ár
Jón G. Hallgrímsson frá jan 1956 - Sept 1957 1 ár
Grímur Jónsson frá sept 1957 - mars 1967 10 ár
Konráð Sigurðsson frá mars 1967 - 1982 15 ár
Guðmundur B. Jóhannsson frá okt 1972 - 1983 10 ár
Kristján Steinsson frá ágúst 1975 - ágúst 1977 2 ár
Pétur Skarphéðinsson frá júlí 1983 - 21 ár +
Gylfi Haraldsson frá okt 1984 - 19 ár +