Borg

Borg í Grímsnesi

Árið 1909 var stofnaður heimavistarskóli á bænum Minni-Borg í Grímsnesi. Þá var reiknað með því að kennarinn annaðist búskap.
Árið 1929 var reist samkomuhús, í landi Stóru-Borgar sem skólinn og kennarinn fluttu í.
Um haustið 1932 kom upp taugaveiki í skólanum með þeim afleiðingum að honum var lokað. Þá dóu skólastjórahjónin. Eftir það var kennt á sveitabæjunum til skiptis. Um vorið 1932 var aftur byrjað að kenna í skólanum. Kennt var einn mánuð á hverju vori í 2 ár, en svo fluttist skólinn aftur á bæina.
Árið 1937 var reist verslunarhús á Borg og stendur það enn.
Árið 1959 var svo hafist handa við byggingu nýs félagsheimilis og var það vígt 19. febrúar 1966. Upp úr 1980 fóru svo að rísa íbúðarhús á Borg og standa þau við svokallaða Borgarbraut.