Geymsla matvæla
Áður fyrr var allur matur ýmist þurrkaður, reyktur eða settur í súra mysu. Einnig var hann saltaður, en í þá daga var salt hjá almenningi af skornum skammti. Sumir létu matinn bara liggja og mygla og kallast það kæstur matur og borðaði fólk hann af bestu lyst.
Nú til dags þegar tæknin hefur rutt sér til rúms virðist sjálfsagt að hafa ísskáp og frystikistu á hverju heimili og þykir mikið þarfaþing.