Matvælaframleiðsla
Helsta matvælaframleiðsla í uppsveitum Árnessýslu, fyrir utan hefðbundna mjólkur- og kjötframleiðslu, er grænmetisframleiðsla, sveppaframleiðsla, silungsveiði og svína- og kjúklingarækt.
GarðyrkjanÞað er mikið af gróðurhúsum í uppsveitum Árnessýslu, og er þau aðallega í Laugarási, á Flúðum og í Reykholti.
Stærsta gróðrarstöðin er á Flúðum og heitir Jörfi . Þar er framleitt mikið grænmeti t.d. káli, papriku og tómötum. Þar eru líka ræktuð jarðarber og blóm.
Stærsta svepparæktarstöð á Íslandi er á Flúðum og heitir Flúðasveppir. Sveppirnir eru aðallega seldir í verslanir og á pizzustaði.
Silungsveiðin
Í Laugarvatni og Apavatni er silungur mikið veiddur.
Í Útey er fyrirtæki sem reykir silung fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Það er eina fyrirtækið sem taðreykir fisk upp á gamla mátann, sem þykir einstakt . Þau birkireykja og heitreykja, en heitreykti silungurinn er ekki komin á markaðinn heldur er aðallega seldur til veitingahúsa.
SvínaræktinSínabú eru á svæðinu. Sjá þau að mestu um ræktun svínanna en ekki slátrun þeirra. Svínin lifa einkum á gömlu brauði sem er flutt á hverjum degi í stórum flutningabíl. Það er góð endurvinnsla brauðs. Síðan selja þau afurðirnar til Hafnar, Sælkeravinnslunnar og Sáturfélags Suðurlands.
Kjúklingaræktin Kjúklingabú er á Stekká. Það sérhæfir sig í stórum kjúklingum. Þeir eru aðallega seldir til veitingastaða, t.d kínverskra staða .
Flestir sveitabæir í uppsveitum Árnessýslu framleiða mjólk sem er send í Mjólkurbú Flóamanna til vinnslu.