stong

Stöng í Þjórsárdal

Á Stöng er talið að býli hafi staðið fram til ársins 1104. Þá gaus Hekla og lagði byggðina í dalnum í rúst.

Árið 1939 voru svo nokkrir bæjanna grafnir upp og þá kom í ljós að bærinn á Stöng var einna heillegastur. Byggt hefur verið yfir hann og þar má sjá ýmislegt fróðlegt, svo sem húsaskipan.

Frá þjóðveginum liggur vel fær vegur upp að Stöng og bæinn má skoða allan ársins hring.

Fyrir nokkrum árum var svo byggt annað hús í líkingu við húsið á Stöng. Það stendur rétt við byggðakjarnann Búrfell og nefnist Þjóðveldisbærinn. Hann er hægt að skoða á sumrin og þá er þar gæslumaður sem leiðbeinir fólki um húsið. Þar er í raun og veru mun meira að skoða vegna þess að þar hafa verið smíðaðar fallegar lokrekkjur og ýmis önnur húsgögn. Einnig er eldstæði vel gert og fleira.