Skólasetrið Laugarvatn


Laugarvatn var á árum áður mjög góð bújörð. Bæjarstæðið þótti mjög fagurt og vegna landstærðar og hlunninda var það jafnan höfuðból.
Árið 1928 var jörðin Laugarvatn seld undir skólarekstur og þá minnkaði búskapurinn smám saman og lagðist alveg af í lok árs 1965.
Staðurinn hefur nú um áratugaskeið verið stærsta skólasetur í sveit á Íslandi.
Elstur skólanna er Héraðsskólinn, stofnaður 1928, en lagður niður vorið 1996.
Húsmæðraskólinn var stofnaður 1942 en var lagður niður 1986.
Árið 1953 var Menntaskólinn að Laugarvatni settur á laggirnar og var það þá helst að tilstuðlan Bjarna Bjarnasonar, sem hafði verið skólastjóri Héraðsskólans um margra ára skeið.
Björn Jakobsson stofnaði árið 1932 íþróttaskóla sinn en skólinn var síðan gerður að Íþróttakennaraskóla Íslands árið 1943. Þessi skóli hefur nú verið sameinaður Kennaraháskóla Íslands og kallast nú Íþróttakennaraskor KHÍ.
Grunnskóli hefur einnig verið starfræktur, um skeið með sjö bekkjum en frá 1996 með 1. - 10. bekk.
Munnmæli herma að eftir kristnitökuna á Þingvöllum árið 1000 hafi sumir heiðingjar verið skírðir í volgri laug við Laugarvatn, svokallaðri Vígðulaug, en þar voru lík Jóns Arasonar og sona hans þvegin eftir að þeir höfðu verið hálshöggnir í Skálholti árið 1550.
Minnisvarðar hafa verið reistir á Laugarvatni um þá menn sem helst hafa mótað sögu staðarins á þessari öld.
Fyrst ber að nefna Jónas Jónsson ráðherra frá Hriflu, en hann, ásamt heimafólki, stóð fyrir stofnun Héraðsskólans. Kennslan í Héraðsskólanum fór fram í húsi sem byggt var í burstabæjarstíl og er almennt talin ein af fegurstu byggingum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins.
Minnisvarði um Bjarna Bjarnason er skammt frá Héraðsskólanum og fallegur minnisvarði er um þau Laugarvatnshjón Böðvar Magnússon og Ingunni Eyjólfsdóttur, en þau seldu jörð sína til stofnunar Héraðsskólans.
Fjöldi fólks hefur nú atvinnu sem tengist skólunum og eru þeir því mjög nauðsynlegir fyrir sveitarfélagið. Á sumrin er Laugarvatn mjög vinsæll ferðamannastaður því þar er veðursæld mikil og margt athyglisvert að skoða.
Laugarvatn er sannkölluð paradís fjölskyldunnar.