Hruni
Hruni er einn sögufrægasti staður Hrunamannahrepps. Þar sem nafnið Hrunamannahreppur er orðið svo gamalt, bendir allt til þess að Hruni hafi verið höfðingjasetur. Þar bjó einn voldugasti maður landsins hér áður fyrr, Þorvaldur Gissurarson (1155-1235), en Gissur Þorvaldsson, eini jarlinn yfir Íslandi, var sonur hans.
Sagt er að kirkjan hafi einu sinni staðið uppi á hæð sem heitir Hruni. Ef vandlega er skoðað má greina mannsandlit þar í klettunum, þ.e. Hrunakarlinn. Einnig er fræg þjóðsagan um Dansinn í Hruna en Indriði Einarsson samdi einmitt leikritið Dansinn í Hruna út frá þessari sögu.