Virkjun Gullfoss

Í byrjun þessarar aldar kom upp mjög sérkennilegt mál við eina af helstu náttúruperlum þjóðarinnar, Gullfoss. Voru þá áætlanir uppi um að virkja fossinn. Stóð þá upp ung bóndadóttir frá Brattholti í Biskupstungum, Sigríður Tómasdóttir að nafni. Barðist hún hetjulega gegn virkjun hans og lagði þar með stóran skerf til umhverfismála á Íslandi. Það er ansi hætt við því að ýmsar náttúruperlur á Íslandi litu öðruvísi út ef hennar hefði ekki notið við.
Fór hún meðal annars oft til Reykjavíkur til að vinna að framgangi máls síns. Það var þó enginn hægðarleikur, því að samgöngur voru í þann tíð um ekkert líkar því sem þær eru í dag.