BISKUPSMORÐ Í SKÁLHOLTI

Jón Gerreksson hét biskup sem uppi var í Skálholti á 15. öld. Jón hafði orðið ósáttur við nokkra menn, þannig að svo fór að mánudaginn 20. júlí 1433 ákváðu þeir að drepa Jón.
Mennirnir komu að Hvítá, og tóku sig til og sundriðu ána rétt neðan við þann stað sem brúin er í dag. Þetta var á Þorláksmessu að sumri, en Jón Gerreksson, sem áður hafði verið erkibiskup í Uppsölum, var við háaltarið í Skálholtsdómkirkju þegar mennirnir, Teitur Gunnlaugsson í Bjarnarnesi og Þorvarður Loftsson á Möðruvöllum komu með lið sitt og tóku hann höndum. Fóru þeir Teitur og Þorvarður ásamt liði sínu með Jón og alla hans sveina út að Brúará. Jón Gerreksson var settur í poka og drekkt í ánni en allir hans sveinar voru aflífaðir á árbakkanum. Aðeins einn manna Jóns komst undan, en hann varð að flýja land til að halda lífi.
Lengst til hægri á myndinni er hylurinn sem biskupi var drekkt í.