Tungufellskirkja
Tungufellskirkja stendur hjá bænum Tungufelli í Hrunamannahreppi, sem er sá bær sem er talinn liggja fjærst allra bæja á Suðurlandi frá sjó. Talið er að kirkja hafi staðið á Tungufelli frá því um 1200 og sennilega mun lengur. Kirkjan var helguð Andrési postula í kaþólskum sið. Tungufellskirkja var útkirkja í Reykjadalsprestakalli en frá Hruna síðan 1819 þegar Reykjadalsbrauð var sameinað Hrunaprestakalli.
Núverandi kirkjuhús í Tungufelli er lítið timburhús, reist árið 1856, og er kirkjan ein af elstu timburkirkjum á Íslandi. Kirkjan er um 22 fermetrar að gólffleti og rúmar um 30 manns í sæti, en í sókninni eru fjórir bæir.
Meðal dýrgripa kirkjunnar eru tvær fornar kirkjuklukkur sem hanga uppi í rjáfri á kirkjuloftinu. Þær eru taldar vera frá 12. öld. Einnig er þar lítill silfurkaleikur með patínu, og í Þjóðminjasafni Íslands er ævagamall, kross úr kirkjunni. Krossinn er 52 cm á hæð og hefur verið altariskross. Hann er heillegastur þeirra smeltkrossa, sem Þjóðminjasafnið á leifar af, og er merkilegur gripur fyrir marga hluta sakir. Eigendur Tungufells gáfu Þjóðminjasafni Íslands kirkjuna árið 1987.