Stóra-Núpskirkja í Gnúpverjahreppi
Þá var að Stóra-Núpi prestur sr. Valdimar Briem, f. 1. febrúar 1848. Hann var settur til að þjóna á Stóra-Núpi 29. júlí 1880. Þjónaði sr. Valdimar þar til 11. mars 1918 eða 38 ár. Af mörgum merkilegum mönnum sem hafa búið í Gnúpverjahreppi þá er sr. Valdimar án efa þeirra merkilegastur. Þekktastur er hann fyrir sálma sína. Án sálma sr. Valdimars væri sálmabókin okkar eins og hún er í dag ónothæf. En ef hún hefði aðeins sálma sr. Valdimars væri hún all góð til nota við helgihaldið.
Kirkjan sem nú stendur var vígð 31. október 1909. Rögnvaldur Ólafsson, húsameistari teiknaði hana. Gestur Einarsson frá Hæli var umsjónarmaður byggingarinnar. Bjarni Jónsson var yfirsmiður, bróðir Einars myndhöggvara. Bjarni þessi var bíóstjóri í Nýjabíó og þá þekktur undir heitinu Bíó-Bjarni. Ásgrímur Jónsson málaði altaristöflu og valdi liti á veggi. Útskurður gerður af Stefáni Eiríkssyni og Ríkharði Jónssyni.
Minnismerki um sr. Valdimar Briem, vígslubiskup og skáld er fyrir utan kirkjuna og var afhjúpað 4. sept. 1988, gert af Helga Gíslasyni.
Nýtt orgel er í kirkjunni. Það var vígt 1990.
Altaristöflurnar.
Ein er úr Steinsholti þar sem sat m.a. sr. Daði Halldórsson. Hin var gefin af Sigríði Jónsdóttur ekkju hr. Jóns Vídalín biskups, Annó 1728 (eldri en útbrotakirkjan) Hún fauk 1908. Einar myndhöggvari, bróðir Bjarna fenginn til að gera við hana."
Útbrotakirkja var reist árið 1770. Hún stóð af sér jarðskjálftann mikla árið 1796, sem lagði Skálholt endanlega að velli í um 150 ár. Útbrotakirkjan stóð í 106 ár.
En árið 1886 var hún rifin og ný kirkja byggð úr timbri, að hluta til timbri úr gömlu útbrotakirkjunni. Predikunarstóllinn úr þeirri kirkju er nú geymdur á Þjóðminjasafninu.
Kirkjan sem var reist árið 1886 stóð einungis í 32 ár, en þá fauk hún af grunni sínum og brotnaði í spón í miklu óveðri milli jóla og nýárs 1908 (en þá fuku einnig Hrepphólakirkja og Kotstrandarkirkja). Predikunarstóllinn úr kirkjunni sem fauk, mun hafa endað í Villingarholtskirkju og er hann þar enn. Orgelið úr kirkjunni, sem fauk einnig, er til enn þann dag í dag, vestur á Meistaravöllum í Reykjavík.