Stóra-Borg
Stóra-Borg er bær og kirkjustaður í Grímsnesi. Kirkja var flutt þangað árið 1931 frá Klausturhólum þar sem verið hafði kirkjustaður frá fyrstu tíð kristni í landinu. Stóru-Borgarkirkja var loks byggð eftir að hugsað hafði verið um það í 20 ár að byggja hana og leggja niður hinar 3 kirkjurnar: á Búrfelli, Mosfelli og Klausturhólum. Hafði þá verið nokkur siður að færa kirkjusetur og steypa saman, en hann var tekinn að dvína þegar röðin kom að Mosfellskirkju og Búrfellskirkju, sem enn standa með prýði, 50 árum eftir að þær skyldu af lagðar.
Stóru-Borgarkirkja er steinsteypt og hefur hún verið sóknarkirkja í nánd við hinn gamla þingstað sveitarinnar.