Klausturhólar
Jörðin hét áður Hólar.
Vilkinsmáldagi Klausturhólakirkju er í Fornbréfasafni frá 1397. Með gjafabréfi þann 16. apríl 1433 gaf Guðríður Ingimundardóttir, Viðeyjarklaustri jörðina fyrir sál bónda síns og sonar. Eftir það heitir jörðin Klausturhólar. Í Klausturhólum sátu prestar uns prestakallið var sameinað Mosfelli. Síðasti presturinn var séra Eggert Sigfússon og fluttist hann þaðan 1884. Síðan hafa Klausturhólar verið bændabýli.
Kirkjan var timburkirkja, byggð 1840. Sú kirkja stóð til 1895. Síðasta kirkjan var þá byggð og stóð hún til vorsins 1932. Hún var þá nokkuð fúin og hafði skekkst á grunni.